Línur lagðar með byggingu lífkolaverksmiðju á Eskifirði

Fyrirtækið Tandraberg stefnir á að reisa lífkolaverksmiðju með allt að tveimur framleiðslulínum á nýju iðnaðarsvæði á Eskifirði skammt frá gangamunna Norðfjarðaganga. Hvor lína um sig gæti framleitt um 500 kwh af orku sem gæti skipt nokkrum sköpum fyrir hitaveituna í bænum.

Tilraunir með lífkol hérlendis hafa ekki staðið lengi yfir en þó gefið afar góðar niðurstöður. Slíkt ferli byggir á bruna á timbri í lokuðum súrefnisfirrtum tönkum en við það kolast timbrið og umbreytist í allt að 95% hreint kolefni. Tvö önnur efni myndast í ferlinu, metan og vetni, en þau er hugmyndin að brenna í samtengdri kyndistöð svo engin efni sleppa út í andrúmsloftið.

Að sögn Einars Birgis Kristjánssonar, framkvæmdastjóra Tandrabergs, gera áætlanir fyrirtækisins ráð fyrir að sett verði upp ein framleiðslulína í byrjun. Slík lína nær að framleiða þúsund tonn af lífkolum árlega með um fjögur þúsund tonnum af grisjunartimbri sem ætlunin er að fá á Héraði. Í öðrum áfanga er hugmyndin að síðari línan notist eingöngu við úrgangsvið sem ekki nýtist í annað.

Uppbót fyrir hitaveituna

Sveitarfélagið Fjarðabyggð hefur sýnt verkefninu mikinn áhuga og af þessu tilefni skrifað undir viljayfirlýsingu við Tandraberg í sumar. Ástæða þess að sögn Einars er að lífkolagerðin gæti skipt nokkrum sköpum fyrir hitaveitu Eskifjarðar til framtíðar.

Hitaveitan á Eskifirði er þannig að borholan er að öllum líkindum ekki sjálfbær og með því að nota þá hitaorku sem verður til við kolagerðina sem búst er við inn á hitaveituna mun líftími borholu bæjarbúa lengjast. Að hluta til er þessi ákveðna staðsetning valin vegna nálægðar við dælustöð hitaveitunnar en aðeins eru nokkrir tugi metra þarna á milli.

Fleira nýtilegt

Önnur aukaafurð sem til fellur við allt ferlið er viðarolía sem er brennanleg og myndi flokkast sem lífolía sem er á pari við lífdísil og alfarið koltvísýringshlutlaus. Kolin sjálf eru einnig vel nýtanleg til margra hluta eins og sem jarðvegsbætir, íblöndunarefni fyrir bæði dýr og sem bætiefni í steypu eða malbik til að lækka kolefnishlutfall slíkra efna.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.