Oddvitar í Norðausturkjördæmi mætast í beinni útsendingu

Oddvitar framboðanna til Alþingis mætast í kvöld í beinni útsendingu á RÚV og Austurfrétt. Rætt verður um áherslumál framboðanna í kjördæminu.

Útsending hefst klukkan 18:10 og gert er ráð fyrir að fundurinn standi í um tvo tíma. Þættinum verður streymt á Austurfrétt en einnig má horfa á hann á RÚV2, ruv.is og hlusta á Rás 2.

Sent er út frá Hofi á Akureyri. Umsjónarmenn eru Freyr Gígja Gunnarsson og Ólöf Rún Erlendsdóttir, fréttamenn RÚV.

Austurfrétt stendur síðan fyrir opnum framboðsfundi í Valaskjálf á Egilsstöðum klukkan 20:00 fimmtudagskvöldið 21. nóvember.

Þátttakendur:

B- Framsóknarflokkur - Ingibjörg Isaksen, þingmaður
D- Sjálfstæðisflokkur - Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri Kaldvíkur
C- Viðreisn - Ingvar Þóroddsson, framhaldsskólakennari
F- Flokkur fólksins Sigurjón Þórðarson, framkvæmdastjóri
J - Sósíalistaflokkurinn - Þorsteinn Bergsson, þýðandi og rithöfundur
L- Lýðræðisflokkurinn - Gunnar Viðar Þórarinsson, athafnamaður
M- MIðflokkurinn - Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður
P- Píratar - Theódór Ingi Ólafsson, forstöðumaður
S- Samfylkingin - Logi Einarsson, þingmaður
V- Vinstri Græn - Sindri Geir Óskarsson, sóknarprestur

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.