Opið fyrir spurningar á framboðsfund fyrir Alþingiskosningarnar 2024

Opnað hefur verið fyrir spurningar á opinn framboðsfund í Norðausturkjördæmi í gegnum vefkerfi. Fundurinn verður haldinn í Valaskjálf á morgun.

Senda má inn spurningar með að fara á www.menti.com og slá þar inn kóðann 6102 1788 eða smella á þessa slóð hér: https://www.menti.com/alnmspp1ntn2

Til hægri er takki sem á stendur „Ask New Question“ Þar er hægt að skrifa spurningar. Í kerfinu er einnig hægt að sjá þær spurningar sem komnar eru og greiða þeim bestu atkvæði til að auka líkurnar á að þær komist á framfæri. Áhersla verður á spurningar sem snúa að öllum framboðum, Austurlandi og þeim áhersluatriðum sem komu fram í kosningakönnun Austurgluggans/Austurfréttar og greint er frá í nýjasta tölublaði Austurgluggans.

Notendur eru hvattir til að kanna hvort þeirra spurningar, eða sambærilegar, séu komnar inn og greiða þeim atkvæði frekar en spyrja sömu eða svipaðrar spurningar aftur. Hægt er að sjá þær í lista hægra megin. Þar er hægt að velja „top spurningar“ sem eru þær sem fengið hafa flest atkvæði og „nýlegar“ sem eru þær sem síðast hafa komið inn.

Minnt er á að spurningar eiga að vera skýrar og málefnalegar. Ekki verður hægt að koma öllum spurningum á framfæri á þeim tæpum tveimur tímum sem reiknað er með að fundurinn taki.

Fundurinn sjálfur hefst klukkan 20:00 og verður í beinni útsendingu hér á Austurfrétt. Frétt með slóð á útsendingu birtist nokkrum mínútum áður en hún hefst.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar