Skriðurnar grænka – myndir
Mikil umskipti hafa orðið á svæðunum sem aurskriður flæddu yfir á Seyðisfirði um miðjan desember. Árangur uppgræðslu í skriðuförunum er vel sýnilegur.Ýmis var tyrft yfir eða grasfræi sáð á svæðin í byrjun júní. Þótt vissulega sjáist enn i brúna moldina eru grösin komin vel á veg og græni liturinn vel sjáanlegur. Viðbrigðin eru því mikil frá í vetur.
Varnargarðarnir sem hlaðnir voru upp minna á hóla sem fyrir ókunnuga falla nokkuð vel inn í náttúruna.
Í síðustu viku kom gestur í bæinn, Svavar Garðarsson vestan úr Dölum. Var þar sjálfboðaliði sem ræktar sumarblóm og vildi færa Seyðfirðingum nokkur til að lengja sumarið. Hann hóf strax eftir skriðurnar að hugsa hvernig hann gæti lagt sitt af mörkum til bæjarins, þrátt fyrir að hafa ekki nokkra tengingu við hann.
Ofan við fossinn í Búðaránni og í klettunum þar í kring sést skriðusárið enn afar vel. Í því má þó greina grænar þúfur.
Í síðustu viku var Hafnargatan og Austurvegurinn, sem fóru verst í hamförunum, malbikaðar á ný. Á fótboltavellinum, þar sem byggt verður íbúðahúsnæði, eru hafnar gatnaframkvæmdir.