Uppsagnir hjá Samskipum hafa líka áhrif á Austurlandi
Tólf starfsmönnum var í síðustu viku sagt upp störfum hjá flutningafyrirtækinu Samskipum. Einn þeirra starfaði á Austurlandi.Þetta kemur fram í svari Þórunnar Ingu Ingjaldsdóttur, markaðsstjóra Samskipa, við fyrirspurn Austurfréttar.
Uppsagnirnar eru víða í starfsemi fyrirtækisins. Þórunn segir þær hluta af skipulags- og áherslubreytingum hjá félaginu, meðal annars til að ná að fram hagræðingu í rekstri og sameina starfsstöðvar.
Þórunn segir ekki verið að sameina starfsstöðvar eystra heldur starfsemi straumlínulöguð, ferlar einfaldaðir og fækkað um eitt stöðugildi, líkt og á fleiri stöðum.
Hún segir enn fremur að í aðgerðunum séu ferlar einfaldaðir sem eigi að skerpa á þjónustuframboði til viðskiptavina.