Varúðarráðstafanir við heimsóknir á hjúkrunarheimili
Sóttvarnalæknir, í gegnum rekstraraðila hjúkrunarheimila um land allt, hefur gefið út leiðbeiningar til þeirra sem hyggja á heimsóknir til ættingja og vina sem dvelja á hjúkrunarheimilum vegna útbreiðslu kórónaveirunnar Covid-19.Íbúar hjúkrunarheimila eru flestir aldraðir og / eða með ýmsa undirliggjandi sjúkdóma. Þeir eru því í sérstökum áhættuhóp á að veikjast alvarlega af kórónaveirunni.
Þeir sem eru með kvefeinkenni, flensulík einkenni eða hafa ferðast nýlega til skilgreindra áhættusvæða samkvæmt upplýsingum á vef Landlæknis eru beðnir um að gæta varúðar og koma ekki í heimsóknir á hjúkrunarheimili.
Mikilvægt er að þeir sem eru frískir, hafa ekki verið á skilgreindum áhættusvæðum og hafa því ekki ástæðu til að ætla að þeir hafi smitast af veirunni hafi eftirfarandi í huga:
Handþvottur er mikilvægasta ráðið til að forðast smit og einnig er mikilvægt að nota handspritt. Þetta skal ávallt hafa í huga þegar komið er inn á heimilin.
Að forðast alla líkamlega snertingu eins og hægt er svo sem handabönd, faðmlög og kossa við íbúa.
Að forðast að koma við snertifleti í almennum rýmum svo sem handriði og hurðarhúna.
Nánar er vísað á leiðbeiningar á vef Landlæknisembættisins því staða mála og leiðbeiningar þeim tengdar geta breyst dag frá degi.
Fjögur hjúkrunarheimili eru rekin á Austurlandi: Sundabúð á Vopnafirði, Dyngja á Egilsstöðum, Fossahlíð á Seyðisfirði, Hulduhlíð á Eskifirði og Uppsalir á Fáskrúðsfirði auk hjúkrunardeildar í Neskaupstað.