Viðrar vel til flugeldaskota
Veðurfræðingar spá því að vel muni viðra til flugeldaskota á Austfjörðum. Þótt hvasst verði fyrri partinn á morgun eigi að lægja með kvöldinu og vera léttskýjað yfir stærstum hluta landsfjórðungsins.
„Áramótaveðrið á Austfjörðum verður líklega mjög gott til flugeldaskota,“ segir Katrín Hermannsdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við Agl.is.
Hún segir að gert sé ráð fyrir norðan og norðvestanáttum eystra á gamlárskvöld. „Það verða líklega 8-13 m/s fyrri part kvöldsins og mun hvassari vindhviður (upp í 20-25 m/s) á sunnanverðum Austfjörðum, en undir og um miðnætti verður farið að draga verulega úr vindi á öllu svæðinu.
Það verður léttskýjað eða heiðskírt á Austfjörðum, en skýjað með köflum á Austurlandi að Glettingi og þar gætu komið stöku él fram eftir kvöldi. Frost 2 til 10 stig og kaldara eftir því sem líður á kvöldið.“