Tilraunir til ræktunar iðnaðarhamps í Berufirði vekja athygli ráðherra
Iðnaðar- og nýsköpunarráðherra segir athugandi að kanna hvort hægt sé að liðka regluverk til að gera ræktendum iðnaðarhamps auðveldara fyrir til að skapa verðmæti úr framleiðslu sinni. Ábúendur á bænum Gautavík í Berufirði hafa í sumar gert tilraunir með ræktun iðnaðarhamps.220 milljóna viðhald á Lagarfljótsbrúnni
Rúmar 200 milljónir eru áætlaðar í viðhald á brúnni yfir Lagarfljót í vetur. Áratugur er enn í endurbyggingu hennar. Unnið verður að fækkun einbreiðra brúa og malarkafla á lykilvegum Austurlands samkvæmt drögum að endurskoðaðri samgönguáætlun.
Framkvæmdir hefjast við Fjarðarheiðargöng 2022
Til stendur að hefja framkvæmdir við Seyðisfjarðargöng strax árið 2022. Axarvegur lítur dagsins ljós á næstu fimm árum samkvæmt tillögum samgönguráðherra um endurskoðaða samgönguáætlun sem kynntar voru í morgun.Sjálfbærni í Hallormstaðaskóla
Námið í Hallormstaðaskóla hefur tekið miklum breytingum og leggur núna mikla áherlslu á sjálfbærni. Á morgun, þann 23. október heldur skólinn einmitt upp á Sjálfbærnidaginn og í tilefni dagsins verður haldið opið málþing.
Lægra verð skilar fleirum í flugið
Vopnfirðingar nýta sér í auknu mæli að fljúga til Akureyrar eftir að fargjöld þangað lækkuðu með nýjum samningi við ríkið í byrjun árs 2017. Flugið eru einu almenningssamgöngurnar sem íbúar staðarins hafa aðgang að.Innanlandsflug niðurgreitt síðla árs 2020
Niðurgreiðsla á innanlandsflugfargjöldum fyrir íbúa landsbyggðarinnar, hin svokallaða skoska leið, mun ekki hefjast fyrr en haustið 2020. Þrýst hafði verið á að byrjað yrði á niðurgreiðslunum strax um næstu áramót.Aðstaða til íþróttaiðkunar afar slæm á Eskifirði
Íþrótta og tómstundanefnd Fjarðabyggðar tók fyrir erindi frá aðalstjórn Austra á síðasta fundi sínum. Stjórn Austra vill að farið verði í breytingu á deiluskipulagi svo hægt verði að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar í bæjarkjarna Eskifjarðar.
Flutningabíll út af á Fjarðarheiði
Flutningabíll fór út af í Norðurbrún á Fjarðarheiði í morgunn. Engin slys urðu á fólki. Ferjan Norræna flýtti för sinni til og frá landinu vegna veðurs.Harðfiskurinn er dauður, lengi lifir harðfiskurinn
Rekstur harðfiskvinnslunnar Sporðs á Eskifirði hefur verið seldur til Borgarfjarðar eystra. Nýr eigandi á von á að framleiðsla besta harðfisks landsins færist smá saman á nýjan stað.