Ljósleiðari milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar
Í dag var staðfest samkomulag um framlög fjarskiptasjóðs til framkvæmda Neyðarlínunnar sem meðal annars fela í sér lagningu ljósleiðara milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar.
„Flygildið þegar virkað betur en við þorðum að vona“
Reynsla af notkun flygildis til eftirlits á hafsvæðum í kringum Ísland hefur þegar verið betri en vænst var í upphafi. Fimmtán manna starfslið fylgir flygildinu.63 nemendur brautskráðir af 14 námsbrautum
Samtals voru 63 nemendur brautskráðir frá Verkmenntaskóla Austurlands og Menntaskólanum á Egilsstöðum síðustu helgina í maí.Hafa áhyggjur af vinnubátum skráðum erlendis
Landhelgisgæslan hefur áhyggjur af tilfellum þar sem fyrirtæki gera út báta skráða erlendis til lengri tíma með áhöfnum sem ekki uppfylla íslensk lög. Framkvæmdastjóri hjá stofnuninni segir fyrirtækin nýta sér gloppur í íslenskum lögum.„Við viljum gera bæinn okkar betri og öruggari“
Slysavarnardeildin Hafdís á Fáskrúðsfirði setti á dögunum upp kistur með björgunarvestum á tveimur stöðum við bryggjur í bænum. Jóhanna Þorsteinsdóttir er í stjórn slysavarnardeildarinnar og segir vestin vera lið í því að gera bæinn betri og öruggari sem sé markmið deildarinnar.
Upplýsingar frá flygildi á Egilsstöðum nýtast til að auka öryggi sjófarenda
Reynsla af notkun flygildis, sem staðsett er á Egilsstaðaflugvelli, við eftirlit á hafi mun gefa gleggri mynd um hvernig nýta megi slík tæki í framtíðinni til auka öryggi sjófarenda og framfylgja lögum. Framkvæmdastjóri Evrópsku siglingaöryggisstofnunarinnar (EMSA) segir reynsluna af flygildinu eiga eftir að nýtast víða í Evrópu.Slæm færð á Fjarðarheiði heldur aftur af ferðalöngum
Vont veður og vetrarfærð á Fjarðarheiði hefur sett strik í reikning ferðalanga úr tveimur skemmtiferðaskipum og ferjunni Norrænu á Seyðisfirði í morgun.Fyrsta sumarferð Norrænu
Um átta hundruð farþegar komu með Norrænu til Seyðisfjarðar í morgun í fyrstu ferð ferjunnar á þessu ári á sumaráætlun hennar. Nóg hefur verið um að vera í höfninni þar sem skemmtiferðaskip eru einnig á ferjunni.„Allir eru almennt glaðari í skólanum eftir bannið”
„Líklega var símabannið erfitt fyrir marga nemendur í upphafi, sérstaklega fyrstu vikurnar, en í vor var þetta bara orðið mjög eðliegt og allir eru sáttir,” segir Sebastían Andri Kjartansson, nemandi í grunnskóla Reyðarfjarðar, um bannið við almennri notkun snjalltækja sem gekk í gildi í grunnskólum Fjarðabyggðar þann 1. febrúar síðastliðinn.Uppsagnir hjá Samskipum hafa líka áhrif á Austurlandi
Tólf starfsmönnum var í síðustu viku sagt upp störfum hjá flutningafyrirtækinu Samskipum. Einn þeirra starfaði á Austurlandi.Forritar framtíðarinnar á Borgarfirði
„Tölvurnar komu sér mjög vel. Allir nemendur skólans nutu kennslu í forritun, yngsta stig þó aðeins færri tíma en mið-og elsta stig. Nemendur voru mjög áhugasamir og virkir í kennslustundum og fegnir að líta upp úr hefðbundnu námi,” segir Sigþrúður Sigurðardóttir skólastjóri, Grunnskóla Borgrafjarðar, en skólinn hlaut í desember styrk frá Forriturum Framtíðarinnar til að efla tæknikunnáttu í skólum.