Jólatréð risið við Kaupfélagið: Aldrei verið hærra
Jólatréð, sem á hverju ári hefur staðið við Kaupfélagið á Egilsstöðum, var reist í gær. Tréð er að þessu sinni fimmtán metra hátt og hefur aldrei verið hærra. Kveikt verður á því á laugardag.„Tréð mældist 15 metra hátt. Það var 16 metrar en einn var skilinn eftir.Mér skildist á mönnum að hæsta tré til þessa fyrir utan Kaupfélagið hafi verið 14,5 metrar," segir Heiðar Róbert Birnuson, verslunarstjóri í Nettó.
Tréð kemur frá Kristni Kristmundssyni sem jafnan hefur verið kenndur við Videofluguna. Það er 47 ára gamalt.
Kveikt verður á trénu á laugardag. Dagskrá hefst við Nettó klukkan 15:00. Sungin verða jólalög og jólasveinar mæta með glaðning handa börnunum. Ljósin á trénu sjálfu verða svo tendruð klukkan 15:30.
Bílastæðin við stórmarkaðinn verða lokuð að hluta á laugardaginn til að gera svæðið öruggara. Bent er á stæði við N1 og sunnan megin við Kaupfélagið.