Rithöfundalest(ur) á Austurlandi: Skáldin koma um helgina

rithofundalest2013Árviss rithöfundalest fer um Austurland helgina 29. nóv. til 1. desember. Á ferð verða fimm höfundar með nýjustu verk sín.

Vigdís Grímsdóttir sem segir frá Dísusögu, Sigríður Þorgrímsdóttir sem les úr Alla mína stelpuspilatíð og Andri Snær Magnason sem opnar Tímakistuna. Bjarki Bjarnason kemur með norðfirsku söguna Sérðu harm minn, sumarnótt? sem Óðinsauga gefur út og Jón Kalman Stefánsson er einnig á austfirskum slóðum í Fiskarnir hafa enga fætur sem kemur út hjá Bjarti.

Að rithöfundalestinni standa Menningarmálanefnd Vopnafjarðar, Gunnarsstofnun, Skaftfell menningarmiðstöð og Umf. Egill Rauði.

Viðkomustaðir eru fjórir að þessu sinni. Lesið verður í Kaupvangi á Vopnafirði föstudagskvöld 29. nóv. kl. 20.30. Laugardag 30. nóv. kl. 14.00 verða höfundarnir á Skriðuklaustri í Fljótsdal og um kvöldið lesa þeir í Skaftfelli á Seyðisfirði kl. 20.30. Á sunnudaginn verða þeir síðan í Safnahúsinu á Norðfirði kl. 13.30.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar