Austurvarp: Hreindýrin bara soguðu mig til sín
Þriggja ára ferli lauk í gær þegar heimildarmyndin „Auga hreindýrsins" var frumsýnd í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Leikstjórinn segist hafa heillast af dýrunum sem verðskuldi meira en að verða bráð veiðimanna.„Dýrin bara soguðu mig til sín," segir Ásgeir Hvítaskál sem gerði myndina ásamt Sólveigu Heiðrúnu Stefánsdóttur.
Myndin fjallar um hreindýr frá ýmsum vinklum. Hún er allt í senn: fræðandi, skemmtileg og mjög mannleg.
Höfundurinn setti sig til dæmis í spor veiðimannsins og rakti bæði vandamál sem upp geta komið og sigra sem unnist geta á veiðum.
Um sjötíu manns sóttu frumsýninguna í gærkvöldi en myndin fer í framhaldinu í víðtækari sölu og dreifingu.