Austfirðingur stýrir þróun nanótækni við lyfjagjöf
Guðrún Marta Ásgrímsdóttir, lyfjafræðingur frá Egilsstöðum, er framkvæmdastjóri fyrirtækisins Oculis sem þróað hefur nýja tegund augndropa sem byggja á nanótækni.Guðrún Marta var kynnt til sögunnar í jóladagatali Nýsköpunarmiðstöðvar í síðustu viku en þar er farið yfir vænleg íslensk sprotafyrirtæki.
Augndropana má nota til að meðhöndla sjúkdóma í bakhluta augans í stað þess að sprauta lyfjum með nál í augað.
Fyrirtækið hefur þróað lyfjaferjur með nanótækni sem notaðar eru til að koma lyfjum inn í augað. Þannig er hægt að einfalda lyfjagjöfina og gefa þau aðeins einu sinni á dag en ná um leið meiri árangur. „Ekki þarf að fjölyrða um lífsgæðin sem þessu fylgir," segir í jóladagatalinu.
Guðrún Marta er sem fyrr sagði framkvæmdastjóri fyrirtækisins en að baki hugmyndinni eru Þorsteinn Loftsson, prófessor við lyfjafræðideild Háskóla Íslands og Einar Stefánsson, prófessor í augnlækningum.
Rannsóknir á nýju augndropunum eru í gangi í Reykjavík, Tel Aviv og Japan.
Guðrún Marta er dóttir Mörtu Kristínar Sigmarsdóttur, sem var sérkennari á Egilsstöðum og Ásgríms Þórs Ásgrímssonar, bólstrara. Guðrún Marta er því að miklu leyti alin upp á svæðinu en hún starfi meðal annars á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum á sínum tíma.