Á næstu línu: Grunntónninn er leitin að ást og hamingju
„Á næstu línu" er fyrsta ljóðabók Huldu Sigurdísar Þráinsdóttur. Hún segir grunntón bókarinnar vera leitina að ást og hamingju en hún leitist við að sjá skoplegu hliðarnar á mannlífinu.„Ég fæ efni bókarinnar frá ýmsum tímum og úr ólíkum áttum," segir Hulda Sigurdís sem starfar sem bókavörður við Menntaskólann á Egilsstöðum.
„Þarna eru draumórakenndar vangaveltur um lífið og tilveruna og gráglettnar hversdagsmyndir. Ég reyni að sjá skoplegu hliðar tilverunnar auk þess sem ástin í sínum margbreytileika er sjaldnast langt undan.
Í mjög einfölduðu máli má segja að grunntónn bókarinnar sé leitin að ást og hamingju."
Í bókinni eru 50 ljóð, öll óhefðbundin og flest frekar stutt.