Keppt í pönnukökubakstri á opnum dögum í ME
Nemendur í Menntaskólanum á Egilsstöðum kepptu sín á milli í pönnukökubakstri á opnum dögum sem haldnir voru í skólanum í vikunni. Dæmt var eftir útliti, bragði og frumleika.Á þriðjudag og miðvikudag var venjuleg kennsla felld niður en nemendur gátu valdið sér smiðjur eftir sínu áhugasviði.
Nemendur fengu til dæmis tækifæri til að fara í skíðaferðalag, gönguferðir, nudd og jóga, tefla og spila læra að flétta og farða, prjóna og hekla og kynnast hugrænni athyglismeðferð, svo dæmi séu tekin.
Íþróttamót skólans „Bæjarins bestu" var haldið á þriðjudagskvöld en þar er nemendum skipt í lið eftir því hvaðan þeir koma.
Opnu dögunum lauk svo á kaffihúsakvöldi í gær þar sem ýmis skemmtiatriði voru á dagskrá auk þess sem afrakstur námskeiða daganna var sýndur og veitt viðurkenningar þar sem það átti við.