Einstæðar myndir af Austurlandi úr fisflugvél - Myndband
Á veraldarvefnum má nú finna Íslandsmyndband tekið í ferð fisflugvéla um landið. Stór hluti myndbandsins er tekinn á Austurlandi og sýnir einstaka sýn á landssvæðið.Það var í júlí 2012 sem sextán fisflugvélar fóru í fimm daga ferð um landið. Flogið var meðfram suðurströndinni. Lent var á Djúpavogi og þaðan flugið áfram meðfram fjörðunum í næturstað uppi á Egilsstöðum.
Vélarnar í ferðinni vöktu einmitt mikla athygli en þeim var lent og slegið upp tjaldbúðum á túni sem tilheyrir Egilsstaðabýlinu. Eftir stopp þar var flogið upp Fljótsdal yfir Kárahnjúkastíflu og áleiðis yfir miðhálendið til Reykjavíkur.
Sextán vélar voru í ferðinni. Flogið var að meðaltali í 4-5 tíma á dag og stoppað ellefu sinnum á leiðinni.
Það voru danskir fisflugvélaáhugamenn frá Auto-Gyro Nordic sem tóku upp myndbandið og settu á YouTube.
„Íslandsferðin var upplifun fyrir lífstíð. Náttúran, fólkið og flugið fóru fram úr okkar allra björtustu væntingum," segir á vef danska klúbbsins.
Myndir af Austurlandi má sjá frá um 2:30-4:50 í meðfylgjandi myndbandi.
Fisflugvélarnar á Egilsstöðum. Mynd: Tara Ösp Tjörvadóttir