Tvö austfirsk söfn á meðal viðurkenndra safna á Íslandi

safnahus egs 0008 webTækniminjasafn Austurlands og Minjasafn Austurlands eru á meðal 39 safna sem hlotið hafa viðurkenningu mennta- og menningarmálaráðherra samkvæmt nýjum safnalögum. Viðurkenningin staðfestir að starfsemin fullnægi faglegum gæðakröfum.

Viðurkenningin er veitt að fenginni tillögu safnaráðs. Markmiðið með henni safna er að taka af öll tvímæli um stöðu viðkomandi safna, skyldur þeirra og samfélagslega ábyrgð.

Viðurkenning ráðherra er opinber staðfesting á að skipulag og starfsemi þeirra fullnægi faglegum gæðakröfum, en safnaráð leggur faglegt mat á umsóknir um viðurkenningu safna og gerir tillögu til ráðherra þar að lútandi.

Meðal skilyrða fyrir viðurkenningu er að eigandi safnsins tryggi safninu fjárhagsgrundvöll fyrir eðlilega starfsemi, að safnið starfi eftir stofnskrá, skrái safnkost sinn í gagnagrunn sem uppfyllir skilmála safnaráðs og standist öryggiskröfur ráðsins.

Sömuleiðis eru gerðar kröfur um menntun eða hæfni forstöðumanns, að safnið sinni faglegu starfi og taki á móti skólanemum án endurgjalds. Loks skal viðurkennt safn einnig fylgja siðareglum ICOM – alþjóðaráðs safna.

Ákvörðun ráðherra um viðurkenningu safns er ótímabundin, en ráðherra getur að fenginni tillögu safnaráðs afturkallað viðurkenningu safns telji ráðið að safnið uppfylli ekki lengur skilyrði viðurkenningar.

Viðurkennd söfn geta sótt um rekstrar- og verkefnastyrki í safnasjóð.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar