Aukasýning á Forsetaheimsókninni í Brúarásskóla

forsetaheimsoknin bruaras webAukasýning verður á söngleiknum Forsetaheimsókninni í Brúarásskóla á sunnudag. Leikverkið, sem er frumsamið, er árshátíðarverk nemenda í ár.

Söngleikurinn er eftir Ingunni Snædal en Jón Arngrímsson sér um tónlistarstjórn. Sagan segir frá eigendum hótels sem eiga von á forsetanum í heimsókn en á meðan strýkur fangi úr haldi. Þeim er ruglað saman sem og flestum öðrum í sögunni svo af hlýst einn stór misskilningur

Árshátíðin er óvenju vegleg í tilefni 35 ára afmælis skólans. Söngleikurinn var frumsýndur um síðustu helgi en sérstök aukasýning verður á sunnudaginn klukkan 16:00.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar