Æðruleysismessa í Stöðvarfjarðarkirkju
Efnt verður til árlegrar æðruleysismessu í Stöðvarfjarðarkirkju á föstudaginn langa í samtarfi við AA fólk á Austfjörðum.„Áhersla er á virka þátttöku í messunni og létta tónlist. Fluttir eru vitnisburðir og allir tendra ljós á kertum framan við altarið í lok messunnar," segir í tilkynningu.
Eftir messu er boðið til hressingar í safnaðarheimili kirkjunnar.
Messan hefst kl. 15.00 í Stöðvarfjarðarkirkju á föstudaginn langa.
Prestur verður sr. Gunnlaugur Stefánsson, sóknarprestur.