Við hjálpum: Lionsklúbburinn Múli styrkti ungmennafélög og legóhóp
Ungmennafélögin Ásinn og Þristur auk legóhóps Brúarásskóla hlutu styrki á nýafstöðnum aðalfundi Lionsklúbbsins Múla. Klúbburinn var að ljúka sínu 44. starfsári.Hvort félag fékk 50 þúsund krónur en legóhópurinn, sem keppir á Evrópumóti á Spáni í vor, fékk 75.000 krónur.
Klúbburinn gefur á hverju ári út dagatal sem fyrirtæki á svæðinu kaupa auglýsingar á og er því síðan dreift á öll heimili og til fyrirtækja á Fljótsdalshéraði.
Aðrar fjáraflanir klúbbsins er rekstur útfararbifreiðar, leiga á leiðiskrossum og uppsetning á þeim í grafreitum um jólahátíðina.
Múli hefur einnig séð um jólaball í samstarfi við sveitarfélagið Fljótsdalshérað.
Fyrir jólin eru þeir sem dvelja á Hjúkrunarheimilinu á Egilsstöðum heimsóttir og þeim gefið konfekt.
Klúbburinn hefur einnig tekið þátt í því ásamt Rauða Krossinum og fleiri aðilum að leggja peninga í sjóð sem notaður er til að deila til þeirra sem lítið hafa handa á milli fyrir jólin.
Erna Friðriksdóttir skíðakona hefur verið styrkt peningalega undanfarin ár við æfingar og keppni.
Lionsklúbburinn Múli á Fljótsdalshéraði er nú að ljúka sínu fertugasta og fjórða starfsári. Félagar í klúbbnum eru 12 talsins og hefur þeim farið fækkandi undanfarin ár. Erfiðlega gengur að fá nýja félaga í klúbbinn. Starfsemi klúbbsins hefur verið hefðbundin þetta starfsár.
Kjörorð Lionshreyfingarinnar er: Við hjálpum. Lionsklúbburinn þakkar Héraðsbúum stuðninginn á liðnum árum. Með stuðningi hefur Lionsklúbburinn Múli lagt sitt af mörkum með því að styrkja ýmis góð málefni í samfélaginu.