Bræðslan: Miðasala og ný heimasíða
Almenn miðasala á tónlistarhátíðina Bræðsluna hefst á midi.is í dag klukkan 10:00. Um leið verður ný heimasíða hátíðarinnar opnuð.Takmarkað magn miða er til sölu og þess má geta að á síðasta ári seldust miðar á Bræðsluna upp á rúmlega tveimur sólarhringum. Bræðslutónleikarnir fara fram þann 26. júlí á Borgarfirði eystra og þar koma fram Lára Rúnars, SúEllen, Mammút, Pollapönk, Drangar og Emilíana Torrini.
Þá verður opnaður nýr vefur á www.braedslan.is þar sem finna má allar upplýsingar um hátíðina og það sem henni tengist. Áhugasömum er líka bent á að fylgjast með Bræðslunni á Facebook, Twitter, Instagram og Youtube.
Allar upplýsingar um þjónustu á Borgarfirði má finna á síðunni www.borgarfjordureystri.is
Miðasala á aðra viðburði á Borgarfirði í Bræðsluvikunni verður kynnt nánar síðar á áðurnefndum vefsíðum þegar þar að kemur.