Guðni Finns: Krakkarnir þekkja mig sem gula kallinn í Pollapönki
Norðfirðingurinn Guðni Finnsson verður í sviðsljósinu í kvöld þegar hann stígur á svið sem bassaleikarinn í Pollapönki í fyrri undanúrslitum Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem fram fara í Kaupmannahöfn. Hann segir vinsældir lagsins „Enga fordóma" hafa aukist eftir því sem nær hefur dregið keppninni.„Fyrst eftir að við unnum virtist fólk skiptast í tvo hópa erlendis eftir hvort því líkaði lagið eða ekki. Þetta er ekki hið dæmigerða júrópopp og þeir sem lifa og hrærast í því fíluðu ekki lagið okkar. Öðrum fannst þetta ferskur straumur í keppninni.
Álitið hefur breyst mikið eftir að við tókum lagið upp á ensku og gerðum myndbandið. Fólk skilur boðskapinn og er farið að taka okkur í sátt. Ef maður skoðar athugasemdirnar við myndbandið á Youtube þá er töluverður meirihluti þeirra nú jákvæður," sagði Guðni í viðtali sem birtist í síðasta tölublaði Austurgluggans.
Hann segir hópinn spenntan fyrir stóru stundinni í kvöld. „Við ætlum fyrst og fremst að hafa gaman af þessu og gera eins vel og við getum. Ég er aldeilis tilbúinn og fullur tilhlökkunar."
Í viðtalinu segist Guðni vera „120% Norðfirðingur" enda búi stórfjölskylda hans öll eystra enn. Hann fór hins vegar að heiman nítján ára gamall og hefur síðan verið í hópi fremstu bassaleikara landsins.
„Ég ætlaði aldrei að spila á bassa. Ég ætlaði að verða söngvari og var ráðinn í hljómsveitina Hálfur undir sæng sem slíkur. Menn voru ekki nógu ánægðir með söngvarana sem þeir höfðu prófað og því var talað við mig. Ég hafði í sjálfu sér aldrei spilað á hljóðfæri né sungið en var til í að prófa. Það dróst hins vegar á langinn að söngvarinn yrði rekinn en ég var sendur heim með bassann og ílengdist á honum."
Hann segir Júróvision-keppnina hafa fært honum aukna frægð. „Maður hefur orðið var við að maður er þekktara andlit en áður. Ef maður fer út í búð eru börn sem þekkja mann og koma til manns til að spjalla eða horfa á mann og segja móður sinni að þetta sé guli kallinn í Pollapönki."
Keppnin í kvöld fer fram í B&W höllinni í Kaupmannahöfn, gamalli skipasmíðastöð sem breytt hefur verið í tónleikasal og rúmar nú tíu þúsund áhorfendur. Guðni sér fram á að þetta verði stærstu tónleikar sem hann hefur spilað á. „Já, ég hugsa það. Þessir verða í beinni útsendingu og við erum að tala um milljónir manna sem horfa á."
Mynd: Pollapönk