Leita eftir áliti íbúa á miðbænum: VisitEgilsstadir.is opnar með þjónustukönnun
Nýr vefur Þjónustusamfélagsins á Fljótsdalshéraði, visitegilsstadir.is, var opnaður fyrir skemmstu. Þar er nú í gangi könnun um ásýnd heimamanna á miðbæinn á Egilsstöðum.„Við viljum fá að heyra skoðun íbúa Héraðsins á nokkrum mikilvægum atriðum er varða ímynd miðbæjarins, ásýnd hans og þjónustu. Jafnframt að fá fram hugmyndir er stuðlað geta að því að gera svæðið enn skemmtilegra og betra sem verslunar- og þjónustumiðstöð fyrir íbúa og gesti," segir Magnfríður Ólöf Pétursdóttir hjá Austurför sem heldur utan um vefinn.
Vefnum er ætlað að draga fram afþreyingu, áhugaverða staði og þjónustu á Héraði, bæði á íslensku og ensku. Henni er ætlað að vera leiðarvísir fyrir ferðamenn og skipar stóran sess í að gera Héraðið og allt sem það hefur uppá að bjóða sýnilegra.
Sveitarfélagið greiddi fyrir heimasíðuna og vinnuna við uppsetningu hennar en hún var, ásamt samningi við Þjónustusamfélagið á Héraði, innlegg sveitarfélagsins í markaðssetningu og kynningarmál Fljótsdalshéraðs.