Sjávarútvegsskóli Fjarðabyggðar stofnaður

neskAusturbrú, Vinnuskóli Fjarðabyggðar ásamt útgerðarfélögunum Eskju, Loðnuvinnslunni og Síldarvinnslunni hafa efnt til samvinnuverkefnis í sumar sem gefur nemendum Vinnuskólans kost á að sækja Sjávarútvegsskóla Fjarðabyggðar.

Í ár verður skólinn í boði fyrir nemendur sem fæddir eru árið 2000 og mun kennsla standa yfir í eina viku. Fyrirmynd skólans er Sjávarútvegsskóli Síldarvinnslunnar sem var sambærilegt tilraunaverkefni sem efnt var til í fyrra. Reyndist það verkefni vel og því við hæfi að skólinn færi út kvíarnar í sumar og fari sem víðast.

Nú er skólinn því samvinnuverkefni fimm aðila og er vonast til að skólinn sé kominn til með að vera. Þeir sem að skólanum koma eru sammála um að mikið vanti upp á í kennslu á sjávarútvegstengdu námi á unglingastigi grunnskóla. „Þetta er kannski kennsla sem krakkarnir fengu hér forðum með atvinnuþátttöku sinni í sjávarútveginum en nú hafa tímarnir breyst og unglingar starfa ekki jafn mikið við sjávarútveg og áður," segir Sindri Karl Sigurðsson, verkefna- og þróunarstjóri Síldarvinnslunnar.

Nemendum Vinnuskólans býðst að sækja skólann á launum í stað hefðbundinnar vinnuviku í Vinnuskólanum. Kennsla fer fram í Sjávarútvegsskólanum sem hér segir:

Neskaupstaður: 23. júní – 27. júní.
Fáskrúðsfjörður og Stöðvarfjörður: 30. júní – 4. júlí.
Eskifjörður og Reyðarfjörður: 7. júlí – 11. júlí.

Kennt verður í Neskaupstað, á Eskifirði og á Fáskrúðsfirði. Nemendum frá Reyðarfirði gefst tækifæri til að sækja kennslu á Eskifirði og nemendur frá Stöðvarfirði eiga kost á að sækja kennslu á Fáskrúðsfirði. Kennt verður í þrjár klukkustundir starfsdagana nema föstudag þar sem kennt verður í 8 klukkustundir (samtals 20 klst.). Á föstudögum er farið á milli byggðarkjarna og hin ýmsu fyrirtæki sem tengjast sjávarútveginum heimsótt.

Í skólanum verður fjallað um fiskveiðar, fiskvinnslu, sjávarútveg á Íslandi, gæða- og markaðsmál og stoðgreinar sjávarútvegsins. Eins verður fjallað um fjölbreytileika þegar kemur að náms- og starfsmöguleikum og tækifæri framtíðarinnar.

Allir sem fæddir eru árið 2000 eru hvattir til að sækja skólann í sumar

Skráning fer fram á síðunni www.sjavarskoli.net.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar