Sólin skein á Skógardeginum – Myndir
Fjöldi gesta lagði leið sína í Hallormsstaðarskóg fyrir rúmri viku þar sem skógardagurinn mikli var haldinn í tíunda sinn. Boðið var upp á fjölbreytt skemmtiatriði, grillað nautakjöt og fleira góðgæti.Að vanda var keppt um Íslandsmeistaratitilinn í skógarhöggi sem vannst aftur austur eftir stutta útlegð á Suðurlandi en það var Seyðfirðingurinn Ólafur Mikaelsson sem þar varð hlutskarpastur.
Dúkkulísurnar spiluðu fyrir gesti og Héraðsdætur og Liljurnar sungu. Pjakkur og Petra heilsuðu upp á gesti og fiðrildi flögruðu um svæðið.
Myndir: Ágúst Valgarð Ólafsson