Funheitt í frystiklefanum á Jazzhátíð – Myndir
Frystiklefinn í Sláturhúsinu á Egilsstöðum stóð ekki undir nafni á Jazzhátíð Egilsstaða á Austurlandi sem haldin var þar nýverið. Þétt var setið í salnum og inni í honum var funheitt.„Ég get samsvarað mig húsinu. Það er gamalt og lúið en samt flott," sagði KK sem spilaði þar með bandi sínu. Hann hrósaði salnum oftar en einu sinni og sagði hann einn besta tónleikasal sem hann hefði spilað í.
KK Bandið spilaði fyrst og fremst blús enda hlógu gestir þegar KK sagði „Við erum búnir að spila jazz í allt kvöld."
Nordic Quartett var eina hreinræktaða jazzbandið á hátíðinni. Að auki komu fram austfirsku sveitirnar Georgy&Co og Dútl. Árni Ísleifsson, guðfaðir hátíðarinnar, setti hana og spilaði með fyrstu sveitunum.
„Það hafa margir komið að hátíðinni í ár og ég vona að hún haldi áfram að blómstra," sagði Jón Hilmar Kárason, stjórnandi hátíðarinnar, áður en síðasta band kvöldsins, Kaleo úr Mosfellsbæ, steig á svið.
Myndir: Ásbjörn Eðvaldsson