Ólöf Birna sýnir í gallerí Klaustri
Opnuð hefur verið sýningin „Í grjótinu" í gallerí Klaustri á Skriðuklaustri. Á henni sýnir Ólöf Birna Blöndal tólf kolateikningar af grjóti, stuðlabergi, fjöllum og steinamyndunum.Ólöf Birna er búsett á Egilsstöðum og sýndi síðast í gallerí Klaustri árið 2001.
Síðan þá hefur hún tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið nokkrar einkasýningar.
Síðast sýndi hún í Sal íslenskrar grafíkur í Reykjavík á vordögum 2014.
Sýningin stendur til 13. ágúst og er opin alla daga kl. 10-18.