Síðasta bók Vilhjálms: Örnefni í Mjóafirði
Þann 20. september næstkomandi hefði Vilhjálmur Hjálmarsson á Brekku í Mjóafirði orðið 100 ára. Af því tilefni kemur út hjá Bókaútgáfunni Hólum vandað rit eftir hann, Örnefni í Mjóafirði. Þar verður að finna á 320 blaðsíðum örnefnaskrá allra jarða við Mjóafjörð, ásamt frásögnum tengdum örnefnunum og öðrum fróðleik. Í bókinni verða einnig kort, litmyndir sem örnefni hafa verið merkt inn á og fjöldi annarra mynda.Vilhjálmur stundaði lengi kennslu og búskap í sinni heimabyggð, en þekktastur er hann þó fyrir hin pólitísku störf sín, en hann var lengi alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn í Austurlandskjördæmi og menntamálaráðherra 1974-1978. Þá skrifaði hann fjölda bóka um menn, málefni og heimabyggð sína.
Sú bók sem nefnd er hér að ofan er síðasta ritverk Vilhjálms og hefur enginn á Íslandi staðið fyrir bókaútgáfu svo gamall og raunar bætti hann sífellt á undanförnum árum eigið Íslandsmet hvað þetta varðar.
Þegar byrjað var að búa umrædda bók til prentunar sagði Vilhjálmur svo frá, að „annaðhvort verður þetta afmælisrit eða minningarrit". Því miður verður hið síðarnefnda ofan á.
Aftast í bókinni verður Tabula memorialis (minningarskrá) og þar geta þeir sem heiðra vilja minningu Vilhjálms fengið nafnið sitt skráð nafn og um leið gerst áskrifendur að bókinni sem kostar kr. 6.480- m/vsk. og sendingargjaldi. Hægt er að panta bókina í netfanginu This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í símum 690-8595/587-2619.