Kom heim til að sýna leirverk: Sýnir rakúbrennslu á morgun

rakubrennslaHelga Unnarsdóttir, leirkerasmiður, stendur fyrir sýningunni „Heima" í Dalshúsi á Eskifirði um þessar mundir. Á morgun geta gestir fylgst með henni rakúbrenna.

Þá eru listaverkin sett í tunnuofn og hann hitaður upp með gasi. Þegar glerungur, sem settur er á verkin, er farinn að fljóta og allt orðið glóandi eru hlutirnir teknir úr tunnunni með töng og settir í sag þar sem eldur kviknar. Þá er eldurinn kæfður þannig að sót fer inn í listmuninn í gegnum glerunginn og myndar sprunguáferð.

Helga er fædd og uppalin á Eskifirði og kenndi þar meðal annars í grunnskólanum í þrjú ár. Hún útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1999 og hefur unnið að listsköpun sinni og rekið vinnustofu sína STUDIOos í Seljahverfi síðan.

Sýning Helgu stendur til 16. ágúst og er opin frá 15:00-18:00. Á morgun, miðvikudaginn 13. ágúst, verður hægt að fylgjast með henni rakúbrenna við Dalshús en sýningin er þá opin 10:00-18:00.

Helga sýndi síðast á Eskifirði árið 2000 í grunninum á nýju kirkjunni sem þá var verið að byggja.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar