Von á óvæntum uppákomum á Hverfahátíð á Seyðisfirði

seydis hverfahatid 006Á morgun laugardag verður hin árlega Hverfahátíð á Seyðisfirði haldin hátíðleg þar sem hverfin sameinast í grilli og almennri gleði.

Heimamenn skreyta hús sín og garða í hverfalitunum og keppa um titilinn: Hverfi ársins og mest skreytta húsið. Þetta gefur bænum hátíðlegan blæ í hvert sinn.

Leikir, dans, brenna og samsöngur er meðal þess sem hátíðin býður líka upp á, og segir Eva Björk Jónudóttir hverfastjóri í samtali við Austurfrétt, að íbúar Seyðisfjarðar megi búast við óvæntum uppákomum í ár.

Allir eru velkomnir á Hverfahátíðina.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar