Leikskólabörnin voru heiðursgestir á opnun listsýningar
Leikskólabörn af leikskólanum Tjarnarskógi á Egilsstöðu voru heiðursgestir við opnun listasýningarinnar „Þetta vilja börnin sjá" í Sláturhúsinu í morgun.Á sýningunni gefur að líta myndskreytingar úr íslenskum barnabókum sem komu út í fyrra. Markmið sýningarinnar er að beina athyglinni að gildi myndskreytinga í barnabókum.
Það voru leikskólabörn af deildinni Rjóðri og Tjarnarbæ sem litu við á sýningunni í morgun á sama tíma og Austurfrétt og virtust nokkuð sátt við það sem boðið var upp á.
Sýningin er opin miðvikudaga-fimmtudaga 18-22 og laugardaga 13-17.