Skemmtileg uppákoma á Teigarhorni á degi Íslenskrar náttúru
Í tilefni af degi íslenskrar náttúru í dag þriðjudaginn 16. september, mun Brynja Davíðsdóttir, umhverfis- og náttúrufræðingur og landvörður að Teigarhorni í Berufirði, taka á móti gestum og gangandi.Brynja tekur á móti áhugasömum kl. 16:00 og sýnir safn geislasteina á Teigarhorni auk þess að fræða gesti um fjölþætt starf landvarðar á hinu friðlýsta svæði. Í framhaldi verður farið í gönguferð þar sem fyrirhugaður göngustígur verður lagður um nærsvæðið og um leið sagt frá því helsta sem fyrir augu ber er varðar fjölbreyttar náttúru- og menningarminjar á Teigarhorni.
Íbúar og aðrir sem hafa áhuga eru hvattir til að heimsækja Teigarhorn á þessum degi og upplifa á fræðandi hátt eina af okkar helstu náttúruperlum á svæðinu.
Mynd: Af vef Djúpavogs