Peningaverðlaun fyrir bestu ljósmynd ársins af Lagarfljótsorminum: Nú er til mikils að vinna
Þar sem búið er að staðfesta tilvist Lagarfljótsormsins vill Þjónustusamfélagið á Héraði hvetja fólk til að reyna að ná myndum af okkar frægasta íbúa og mun nú framvegis halda árlega ljósmyndasamkeppni um bestu myndina af orminum.„Keppnin er í raun í gangi allan ársins hring og getur fólk sent inn myndir þegar það vill. Svo er dregið út á sama tíma á hverju ári þá sýnum við myndirnar og veitum verðlaun fyrir þá flottustu. Þetta er svona verkefni sem er alltaf í gangi og nú er til mikils að vinna,“ segir Magnfríður Ólöf Pétursdóttir, starfsmaður Þjónustusamfélagsins á héraði.
Þjónustusamfélagið á Héraði hefur líka ákveðið að veita framvegis peningaverðlaun uppá 50.000 kr. fyrir bestu ljósmyndina af Lagarfljótsorminum.
Tekið er á móti myndum á netfanginu This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Samkeppni verður svo nánar auglýst síðar á heimasíðunni www.visitegilsstadir.is og á samfélagsmiðlum.
Samkeppni verður svo nánar auglýst síðar á heimasíðunni www.visitegilsstadir.is og á samfélagsmiðlum.