Seyðisfjörður áberandi í nýju landkynningarmyndbandi
Seyðisfjörður er einn af lykilstöðunum í nýju landkynningarmyndbandi átaksins Inspired by Iceland sem vakið hefur athygli víða um heim. Í því er leitast við að leita uppi faldar gersemar á landinu.Myndbandið var tekið síðasta vetur en þar er fylgt eftir ferð Jennifer Asmundson, matreiðslumeistara frá Seattle í Bandaríkjunum sem vann ferð um landið.
„Það eru engin orð til að lýsa þessu, þetta er svo ótrúlega fallegt," segir Jennifer í myndbandinu um upplifun sína en fjallað er um hana á vef breska stórblaðsins Daily Mail í dag.
Farið er landshorna á milli, frá Seyðisfirði til Snæfellsness, en komið var austur á öðrm degi ferðarinnar. Buslað er í Lóninu á Seyðisfirði og litið við í LungA lýðháskólanum.
Alls eru yfir 20 staðir á Austurlandi skráðir í „Share the Secret" herferðinni.