Hreindýraskyttur: Líflegar og fræðandi frásagnir af hreindýraveiðum

hreindyraskyttur„Þessi bók er fyrst og fremst um fólk sem býr fyrir austan og Austurland eins og það leggur sig,“ segir Guðni Einarsson blaðamaður um bók sína Hreindýraskyttur sem er nýkomin út.

>Í bókinni segja tíu einstaklingar frá ævintýrum sínum á hreindýraveiðum á Íslandi og Grænlandi. Auk þess er saga hreindýraveiða hér á landi rakin.

„Allt þetta fólk sem ég tala við hefur veitt hreindýr fyrir austan en það kemur víða að af landinu. Flestir eru þó af Austurlandi. Meðal annars Aðalsteinn Aðalsteinsson frá Vaðbrekku sem byrjaði að skjóta hreindýr á fermingarárinu og systir hans Sigrún Aðalsteinsdóttir eða Sída, en hún var að öllum líkindum fyrsta konan á Íslandi til að skjóta hreindýr. Gunnar A. Guttormsson á Litla-Bakka og veiðfélagi hans, Guttormur Sigbjarnarson segja sögu sína, en þeir fóru fyrst til veiða 1954. Svo talaði ég að sjálfsögðu við veiðimeistarann sjálfan, Sigurð Aðalsteinsson, en ég held að hann viti meira um hreindýr en hreindýrin sjálf,“ segir Guðni og hlær. Aðrir sem segja sögu sína í bókinni eru Axel Kristjánsson, Þorgils Gunnlaugsson, María B. Gunnarsdóttir, Pálmi Gestsson og Sæunn Marinósdóttir

Viðtöl og fróðleikur

Bókin sem er viðtalsbók er prýdd kortum og fjölda mynda. „Þar á Sigurður Aðalsteinsson aftur mikinn heiður skilið. Fyrir utan hvað hann er öflugur og duglegur veiðimaður þá er hann mjög góður ljósmyndari. Ég held að hann eigi myndir hreinlega af öllum sem hafa farið með honum til veiða og það er gríðarlega mikill fjársjóður og mikil heimild. Síðan voru líka útbúin kort af hreindýraveiðisvæðunum annarsvegar og hinsvegar af því svæði sem mest er fjallað um, svæðum eitt og tvö, en þaðan eru flestar sögurnar og flest örnefnin sem eru sagt frá í frásögnunum.“

Dýrmætar sögur

Hugmyndin af bókinni kviknaði á hreindýraveiðum. „Ég fór á mínar fyrstu hreindýraveiðar árið 1999, þá með Sigurði Aðalsteinssyni. Árið eftir fór ég svo aftur og þá var ég að samferða þeim heiðursmönnum, Axel Kristjánssyni og Kristfinni I. Jónssyni. Siggi var leiðsögumaður okkar sem fyrr.  Ég var snöggur að veiða og svo fékk ég nánast allan daginn sögustund með þeim Axel og Kristfinni en Axel hefur stundað hreindýraveiðar frá árinu 1963. Sögurnar sem þeir sögðu sýndu mér það að hreindýraveiðar hafa breyst gífurlega og hvernig þær eru stundaðar. Í gamla daga voru þetta miklir leiðangrar. Þetta var nánast eins og að fara á Suðurskautið í dag að fara austur á hreindýr í þá daga! Það tók langan tíma og mikinn undirbúning. Svo kynntist ég Aðalsteini, eða Danna, á Vaðbrekku. Hann sagði mér líka gamlar sögur. Hann er tvímælalaust reynslumesti núlifandi hreindýraveiðimaður á Íslandi. Veiðisaga hans er svo gríðarlega löng, það nálgast 70 ár sem hann er búin að vera að veiða hreindýr. Að þessu samanlögðu fannst mér eins og sögur þessara reynslubolta þyrfti að varðveita. Svo ég fór að tala við þessa menn og fleiri til að safna þessum sögum.“

Mikið ævintýri

En hvað er það sem er svona sjarmerandi við hreindýraveiðarnar? “Allt í kringum þetta er mjög heilllandi og margir lýsa því vel í bókinni hvað það er sem togar. Að fella dýrið er bara brot af því og svo er allt hitt í kringum það. Félagskapurinn, ferðalagið, veiðarnar, stemmingin. Það er bara eitt orð yfir það. Ævintýri. Það er ævintýrið sem dregur fólk að.“ En fyrir hverja er bókin? „Hún er hreinlega fyrir alla sem hafa áhuga á hreindýraveiðum. Ég vona bara að fólk fyrir austan og allir veiðimenn lesi þessa bók. Hún er fyrir þá, og til að varðveita þessar sögur fyrir framtíðina,“ segir Guðni að lokum í samtali við Austurfrétt.

Mynd: Siggi á Vaðbrekku og Guðni Einarsson
Siggi Gudni hreindyraskittur
 

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.