Harðkjarni á Vegareiði - Myndir
Fullt hús var á þungarokkstónleikunum Vegareiði sem fram fóru í Sláturhúsinu á Egilsstöðum í síðasta mánuði.Hljómsveitin Dimma var aðalnúmer kvöldsins en auk hennar komu fram austfirsku sveitirnar Kjerúlfur, Br.Önd, 2nd White Sunday, Rustikuss og Oni.
Þetta var í tíunda sinn sem tónleikarnir eru haldnir en markmið þeirra er að vera vettvangur fyrir austfirskar rokksveitir í þyngri kantinum. Austurfrétt leit við og fangaði nokkur augnablik.