Austfirskt samfélag til umfjöllunar í Listaháskólanum
![news from nowhere karna](/images/stories/news/2014/news_from_nowhere_karna.jpg)
Fyrirlesturinn nefnist „News from Nowhere - Hönnun og samfélag“ og fjallar um samfélagsleg áhrif hönnunarverkefnisins „Austurland: Designs from nowhere“. Verkefnið, sem Karna stýrði ásamt Pete Collard, hefur vakið verðskuldaða athygli og hlaut Hönnunarverðlaun Íslands í fyrsta skipti sem þau verðlaun voru veitt.
Fyrirlesturinn í LHÍ er hlut af fyrirlestraröð hönnunar- og arkitektúrdeildarinnar sem nefnist GESTAGANGUR, en þar kynna ýmsir utanaðkomandi sérfræðingar spennandi verkefni sem þeir hafa unnið að.
Fyrirlesturinn fer fram í húsnæði LHÍ að Þverholti 11 í fyrirlestrasal A, þriðjudaginn 9. desember og hefst hann kl. 12:10. Allir eru velkomnir.