Jólalagið orðið að hefð hjá 10. bekk Egilsstaðaskóla - Myndband
Nemendur í tíunda bekk Egilsstaðaskóla luku haustönn sinni með því að semja jólatexta, syngja hann og gera myndband. Þetta er annað árið í röð sem bekkurinn ræðst í slíka vinnu.Krakkarnir réðust ekki á garðinn þar sem hann var lægstur því textinn er saminn við lagið „Let it Go" úr Disney-teiknimyndinni Frozen en lagið fékk meðal annars Óskarsverðlaun fyrir besta frumsamda lagið.
Stelpurnar í bekknum hjálpuðust að við að gera textann en þeir Aron Steinn Halldórsson og Atli Berg Kárason tóku og klipptu myndbandið.
Krakkarnir leika sjálf í myndbandinu en umsjónarkennararnir Sigfús Guttormsson og Anna Björk Guðjónsdóttir leika þar einnig stór hlutverk.
Og með þessu myndbandi óskum við hjá Austurfrétt lesendum okkar gleðilegra jóla.