Austfirsku skólarnir til leiks í Gettu betur
Lið Menntaskólans á Egilsstöðum og Verkmenntaskóla Austurlands mæta til leiks í spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur í vikunni.Fyrsta umferð keppninnar fer fram í vikunni og hófst í gærkvöldi. ME-ingar mæta hins vegar til leiks í kvöld gegn Framhaldsskólanum í Vestmanneyjum klukkan 20:00.
Liðið er óbreytt frá í fyrra en það skipa þau Ingvar Þorsteinsson, Þórir Steinn Valgeirsson og Herdís Þórhallsdóttir.
Verkmenntaskólinn mætir á móti með alveg nýtt lið en liðið mætir Menntaskólanum í Reykjavík klukkan 19:30 annað kvöld.
Síðasta keppniskvöld fyrstu umferðar er á fimmtudag og í lok þess verður dregið í annarri umferð. Sigurliðin í henni vinna sér þátttökurétt í sjónvarpshluta keppninnar.
Mynd: Lið VA í fyrra komst í aðra umferð.