Helgin: Fljótsdalshérað mætir Árborg í Útsvari í kvöld
Fljótsdalshérað mætir Árborg í spurningakeppninni Útsvar í sjónvarpinu í kvöld. Karlalið Hattar í körfuknattleik og Þróttar í blaki spila útileiki um helgina.Það eru þau Björg Björnsdóttir, Eyjólfur Þorkelsson og Þorsteinn Bergsson sem skipa Útsvarsliðið sem mætir til leiks í beinni útsendingu á RÚV klukkan 21:00 í kvöld.
Karlalið Þróttar í blaki, sem er sem stendur í þriðja sæti deildarinnar, spilar í kvöld gegn Aftureldingu og gegn HK á morgun. Báðir leikirnir eru á útvelli.
Þá heimsækir körfuknattleikslið Hattar Skagamenn klukkan 14:30 á morgun. Höttur er fyrir umferðina með átta stiga forskot í efsta sæti.