Enn óvíst um framhald Fortitude
Engin ákvörðun hefur enn verið opinberuð um framhald Fortitude-sjónvarpsþáttanna. Senn líður að lokum sýninga þeirra í Bretlandi.„Akkúrat núna er ekki frá neinu að segja um mögulega aðra þáttaröð af Fortitude," segir Luke Morrison, talsmaður Sky Atlantic sjónvarpsstöðvarinnar í svari við fyrirspurn Austurfréttar.
Við frumsýningu þáttanna í janúar sagði einn framleiðandi þáttanna að ákvörðunar um framhaldið væri að vænta um mánaðarmótin mars/apríl þegar sýningar þáttanna væru vel á veg komnar.
Tólfti og síðasti þátturinn verður sendur út í Bretlandi á fimmtudagskvöld. Hérlendis verður þáttur níu af tólf sendur út sama kvöld.