„Lyklarnir munu aldrei gleymast í aftur": Stolin bifreið komin í leitirnar

Reydarfjordur webBifreið sem stolið var úr bílastæði fyrir utan heimili á Reyðarfirði aðfaranótt sunnudag er kominn í leitirnar.

Thelma Rún Magnúsdóttir og Heimir Arnfinnsson vöknuðu upp við heldur vondan draum á sunnudagsmorgun en bíllinn þeirra, Subaru Legacy, var horfinn úr stæðinu.

Málið fékk þó góðan endi, því sá sem tók bílinn ófrjálsri hendi, hafði samband við Thelmu og Heimi síðdegis í gær og vildi skila honum. Bíllinn hlaut engar skemmdir af.

„Fyrir eitthvað algert kæruleysi voru lyklarnir í bílnum þessa nótt," sagði Thelma Rún í samtali við Austurfrétt. „Það er frekar óhugnarlegt að upplifa eitthvað svona, en ég held að þetta hafi verið einstakt tilfelli. Það er þó alveg á hreinu að lyklarnir munu aldrei gleymast í bílnum aftur."


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar