Uppselt á Hammond-hátíð sem hefst í kvöld
Uppselt er á alla tónleika Hammond-hátíðar Djúpavogs sem sett verður að vanda í kvöld. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin tíu ár og er orðin að langstærsta menningarviðburði staðarins.Hátíðin er tónlistarhátíð þar sem Hammond-orgelið er hafið til vegs og virðingar en henni fylgja einnig ýmsir viðburðir.
Þannig verður í Löngubúð í dag opnuð myndlistarsýning Hildar Bjarkar klukkan 14:00.
Tónlistarhátíðin hefst hins vegar í kvöld með tónleikum Amaba dama og Kiriyama Family. Á morgun er það Karlsstaðaprinsinn sem kennir sig við Póló og Jónas Sigurðsson ásamt Ritvélum framtíðarinnar og Bubbi og Dimma mæta á laugardag.
Á sunnudag verður fyrirlestur um edrúlífið þar sem Jóhannes Kr. Kristjánsson, blaðamaður, verður annar fyrirlesara.
Hátíðinni lýkur svo með tónleikum Magga Eiríks og Pálma Gunnars í kirkjunni en orgelleikarinn Þórir Úlfarsson leikur undir með þeim.
Frá Hammond-hátíð í fyrra. Mynd: Ólafur Björnsson