Ný sýning um hreindýr á Austurlandi í Safnahúsinu á Egilsstöðum – Opið hús á morgun

IMG 1370Ný grunnsýning Minjasafns Austurlands opnar formlega laugardaginn 6. júní 2015 kl. 13:30. Sýningin ber heitið „Hreindýrin á Austurlandi“ og fjallar um eiginleika hreindýranna og sögu þeirra á Austurlandi, rannsóknir á þeim, veiðarnar, og nýtingu afurðanna, handverk og hönnun.

Sýninguna prýða fjölmargar ljósmyndir af hreindýrum á Austurlandi eftir Skarphéðinn G. Þórisson, helsta sérfræðings landsins um hreindýr, auk dýrgripa á borð við gamlar ljósmyndir af hreindýraveiðum og kvikmyndin „Á hreindýraslóðum“ eftir Eðvarð Sigurgeirsson. Á sýningunni má sjá ýmsa haglega gerða hluti úr hreindýrshornum og hreindýrsskinni.

Gerð sýningarinnar fór fram í samvinnu við Náttúrustofu Austurlands og Umhverfisstofnunar á Egilsstöðum. Fjölmargir lögðu verkefninu lið, bæði einstaklingar og stofnanir. Sýningarhönnuður er Björn G. Björnsson. Um verkefnisstjórn sá Unnur B. Karlsdóttir sagnfræðingur.

Fyrir þá sem komast ekki á opið hús á morgun má benda á að sýningin verður opin alla virka daga frá kl. 11:30-19:00 og um helgar frá 10:30-18:00 til 31. ágúst.

Mynd: Unnur B. Karlsdóttir, verkefnisstjóri sýningarinnar

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar