Verður þú fjallagarpur gönguvikunnar Á fætur í Fjarðabyggð í ár?
Gönguvikan Á fætur í Fjarðabyggð er með stærstu útivistarviðburðum ársins og hefst hún næstkomandi laugardag.Á fimmta tug viðburða verða þá viku, bæði gönguferðir og skemmtanir. Áhersla er lögð á fjölbreyttar gönguleiðir við allra hæfi, s.s. fjölskyldugöngur, sögugöngur og göngur fyrir alvöru fjallagarpa.
Á kvöldin er brugðið á leik með kvöldvökum og sjóræningjapartíum auk þess sem Náttúruskólinn er starfræktur fyrir yngstu þátttakendurna.
Göngu- og gleðivikan fer fram síðustu vikuna í júní, eða frá 20. til 27. júní og fyllir átta heila daga af fjölbreyttum viðburðum og frábærri útivist.
Skipuleggjendur eru Ferðafélag Fjarðamanna í samstarfi við Ferðaþjónustuna Mjóeyri.
Um glæsilega dagskrá er að ræða sem má í heild sinni sjá hér.
Ljósmyndin er að síðu Fjarðabyggðar