Fjölmenni fagnaði kvenréttindadeginum hjá Alcoa Fjarðaáli

alcoa 19juni landscape yfir-hopinn web5Kvenréttindadeginum var að venju fagnað hjá Alcoa Fjarðaáli þann 19. Júní, en rúmlega tvö hundruð konur á Austurlandi þáðu boð fyrirtækisins að koma og fagna deginum ásamt starfsfólki.

Að þessu sinni var því sérstaklega fagnað að liðin eru 100 ár síðan íslenskar konur fengu kosningarrétt og var boðið því sérstaklega veglegt í ár.

Fjarðaál hefur frá upphafi starfseminnar boðið konum á Austurlandi í síðdegiskaffi 19. júní. Að meðaltali hafa um tvö hundruð konur mætt, þegið veitingar, hlustað á ræður og notið góðrar tónlistar.

Að þessu sinni hófust hátíðarhöldin í hádeginu í matsal fyrirtækisins þegar hrint var úr vör HeForShe átaki UN-Women sem var afar viðeigandi á vinnustað þar sem meirihluti starfsmanna eru karlmenn. Magnús Orri Schram, stjórnarmaður í UN-Women á Íslandi kom og greindi frá átakinu og mikilvægi þess og Magnús Þór Ásmundson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls sagði frá því hvers vegna jafnrétti væri honum mikilvægt. Það gerðu sömuleiðis þrír aðrir karlar sem starfa hjá Fjarðaáli og sitja nú í jafnréttisnefnd fyrirtækisins.


Fjöldi karla skrifaði undir

Átakið HeForShe gengur út á að karlar taki afstöðu með jafnrétti kynjanna og lýsi því yfir að þeir séu reiðubúnir að leggja sitt af mörkum í þessari baráttu og sýna það með því að skrifa undir viljayfirlýsingu á vefnum. Fjöldi karlmanna í starfsliði Fjarðaáls sem leið átti í mötuneytið skrifaði undir viljayfirlýsinguna. Í framhaldi samkomunnar verður unnið að því áfram innan fyrirtækisins að vekja athygli á átakinu svo það nái eyrum sem flestra starfsmanna.


Konur fagna 100 ára afmæli

Sjálft kvennaboðið tók við síðar um daginn en þá hittust um tvö hundruð austfirskar konur í matsal Fjarðaáls og áttu skemmtilega stund saman.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins flutti ávarp og talaði þar um það sem áunnist hefur í jafnréttisbaráttunni en minnti einnig á að enn er nokkuð í land og vísaði til dæmis til bágrar stöðu kvenna á forstjórastóli íslenskra fyrirtækja. Þá talaði hún einnig um mikilvægi sterkra kvenfyrirmynda og minntist þar sérstaklega á Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta Íslands.

Björk Jakobsdóttir leikkona og skemmtikraftur sá um veislustjórn og skemmti gestum eins og henni einni er lagið.

Þess má geta að lokum að í tilefni hátíðarhaldanna í ár var opnuð ljósmyndasýning í álverinu sem nefnist Konur í álveri með myndum eftir Jón Tryggvason áhugaljósmyndara og starfsmann Alcoa Fjarðaáls. Um er að ræða myndir af konum sem eiga það sameiginlegt að vinna á álverslóðinni, sumar hjá Fjarðaáli og aðrar hjá verktökum á svæðinu. Myndir Jóns endurspegla þann kraft og styrkleika sem býr í þeim konum sem starfa á álverslóðinni við Reyðarfjörð.

alcoa 19juni bjork jakobsdottir web1alcoa 19juni landscape yfir-hopinn web5alcoa 19juni ljosmyndasyning web2alcoa 19juni maria adalheidur dagmar web4alcoa 19juni tveir starfsmenn heforshe web3

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar