Eistnaflug: Innréttuðu sendiferðabíl til að þurfa ekki að sofa í tjaldi

van halen van 0003 webVinirnir Einar Sveinn Friðriksson, Andri Hrafn Karlsson og Hrólfur Eyjólfsson keyptu síðasta haust sendiferðabíl og hafa í vetur dundað sér við að gera hann upp fyrir tónlistarhátíðina Eistnaflug. Þeir kusu frekar að hafast við í bílnum heldur en tjaldi.

„Við gerðum hann næstum íbúðarhæfan. Við vorum til klukkan fimm á miðvikudagsmorgun að klára það sem við ætluðum að gera í vetur," segir Andri Hrafn.

Dodge sendiferðabíllinn var mjög ryðgaður þegar hann var keyptur síðasta haust. Mestur tíminn hefur því farið í að sjóða í boddíið til að laga ryðgöt. „Það eru tugir vinnustunda að baki þar og margar andvökunætur."

Minni háttar gangtruflanir voru í bílnum en þær voru lagaðar með nýjum startara. Bílinn athugasemdalítið í gegnum skoðun og síðustu daga hefur verið bætt úr þeim.

Bílinn er síðan búið að innrétta með trébekk sem hægt er að liggja á til að hvílast en má einnig breyta í bekki og borð þess á milli. „Við keyptum bílinn því við nenntum ekki að sofa í tjaldi," útskýrir Einar Sveinn.

„Hann er vindheldur, heldur nokkurn vegin vatni og er töff," segir Einar sem er að fara á Eistnaflugið í sjöunda sinn. „Þarna er besta stemming sem ég hef upplifað á útihátíð. Tónlistin er góð, félagsskapurinn góður og aldrei neitt kjaftæði."

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar