Minningarsjóður um Guðmund Bjarnason

gudmundur bjarnason gudmundarsjodur webGuðmundarsjóður, til minningar um Guðmund Bjarnason, fyrrverandi starfsmannastjóra Síldarvinnslunnar, var stofnaður á aðalfundi fyrirtækisins í gær.

Guðmundur gegndi starfi starfsmannastjóra Síldarvinnslunnar á árunum 1977-1991 eða þar til hann settist í stól bæjarstjóra. Þá sat hann í stjórn Síldarvinnslunnar á árunum 1991-2005.

Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður félagsins, minntist Guðmundar á fundinum – sagði hann Norðfirðing, félagshyggjum sem bjó yfir ótvíræðum forystuhæfileikum og síðast en ekki síst, Síldarvinnslumann í húð og hár.

„Guðmundur hafði mjög góðan skilning á mikilvægi atvinnulífsins fyrir samfélagið. Hann lagði áherslu á að velgengni atvinnulífsins væri forsenda þess að íbúarnir gætu búið við góðar aðstæður og hagsæld. Hann var sífellt í sambandi við forsvarsmenn Síldarvinnslunnar, spurði frétta og hvatti til uppbyggingar og góðra verka. Til hans var einnig leitað að hálfu fyrirtækisins því fáir þekktu betur nærsamfélagið og eðli þess og leitun var að mönnum sem bjuggu yfir meiri þekkingu á stjórnsýslu ríkisins. Ávallt var Guðmundur tilbúinn að leggja góðum málum lið og ávallt var hann jákvæður en jafnframt raunsær," sagði Þorsteinn.

Þorsteinn talaði um þá einstöku kímnigáfu sem Guðmundur bjó yfir, bæði á mannamótum og í daglegu lífi.

„Hann var mannvinur og vildi öllum vel. Sú félagshyggja sem hann stóð fyrir birtist með skýrum hætti í störfum Samvinnufélags útgerðarmanna en þar átti Guðmundur sæti í stjórn í 30 ár, þar af formaður síðustu 10 árin. Samvinnufélagið hefur notað stærstan hluta þess árlega arðs sem það hefur fengið vegna eignar sinnar í Síldarvinnslunni til góðra málefna innan fjallahrings Norðfjarðar. Guðmundur átti stærstan hlut í að móta stefnuna um ráðstöfun arðsins og sú stefna á mikinn þátt í að móta það blómstrandi mannlíf sem hér þrífst."


Sjóður til styrktar afreksfólki í íþróttum

Þorsteinn tilkynnti á aðalfundinum að stjórn Síldarvinnslunnar hefði ákveðið að koma á fót sjóði sem kenndur verður við Guðmund Bjarnason. Sjóðnum er ætlað að styrkja afreksfólk á sviði íþrótta í Neskaupstað en Guðmundur var mikill áhugamaður um íþróttir og formaður Íþróttafélagsins Þróttar á árunum 1984-1987. Verður þess farið á leit við Þrótt að það annist sjóðinn en Síldarvinnslan mun árlega leggja eina milljón króna til hans.



Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar