Í skýjunum með Hammondhátíð: Myndir
Forsvarsmenn Hammondhátíðarinnar á Djúpavogi, sem haldin var um helgina, eru afar ánægðir með hvernig til tókst. Hátíðin, sem haldin hefur verið síðustu sex ár, var sú fjölmennasta til þessa.„Við erum í skýjunum með hátíðina sem gekk vonum framar,“ segir Ólafur Björnsson, aðalskipuleggjandi hátíðarinnar. Á áttunda hundrað gesta sótti tónleikana fjóra sem í boði var. Meðal þeirra sem fram komu voru Ný dönsk, Jónas Sigurðsson, nemendur úr FÍH, Karlakórinn Trausti og Dúndurfréttir.
Lokatónleikar hátíðarinnar voru með Magnúsi og Jóhanni í Djúpavogskirkju á sunnudag. Þeim seinkaði reyndar um klukkustund því hægt gekk að ferja þá yfir Fagradal.
Þá voru ýmsir aðrir viðburðir í gangi á Djúpavogi yfir helgina.
Myndir: Birgir Th. Ágústsson