Sumarbúðastarfið við Eiðavatn að hefjast
Sumarbúðastarf Þjóðkirkjunnar á Eiðum hefst í næstu viku. Boðið er upp á fjóra mismunandi dvalarflokka í júnímánuði.Þjóðkirkjan hefur rekið sumarbúðir á Eiðum frá árinu 1968, fyrst í Barnaskólahúsinu, en Kirkjumiðstöðin við Eiðavatn var vígð árið 1991 og hefur sumarbúðastarfið farið fram þar á hverju sumri eftir það.
Að þessu sinni verður boðið upp á fjóra dvalarflokka:
1. flokkur 4.-7. júní 4 dagar 12-14 ára 1999-2001 24.500 Ævintýraflokkur - Laus pláss
2. flokkur 10.-14. júní 5 dagar 8-12 ára 2001-2005 29.500 Fullbókað - Biðlisti!
3. flokkur 18.-21. júní 4 dagar 7-9 ára 2004-2006 24.500 Laus pláss
4. flokkur 23.-28. júní 6 dagar 10-13 ára 2000-2003 34.000 Leiklistarflokkur - Laus pláss
Leiklistarflokkurinn er nýbreytni í sumar, þar sem hluta dagsins verður varið í að æfa leikrit eða búa til stuttmynd, en að sjálfsögðu eru öll hin ævintýrin úr sumarbúðunum á sínum stað
Sumarbúðastjóri ársins er Hjalti Jón Sverrisson, guðfræðingur og tónlistarmaður úr Fellabæ, og með honum starfa öflugir, austfirskir leiðtogar sem allir fá fræðslu í upphafi sumars, m.a. um skyndihjálp og brunavarnir.
Hægt er að skrá þátttakendur í þá flokka, þar sem enn eru laus pláss, með því að hringja í síma 892-3890 eða í tölvupósti: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..